User Tools

Site Tools


outlook2007

This is an old revision of the document!


Microsoft Outlook

Eftirfarandi gildir um alla póstþjónustu 1984:

Incoming mail server er alltaf mail.1984.is og deilir út pósti á porti 143(IMAP) eða 110(POP). mail.1984.is er líka hægt að nota fyrir Outgoing mail server, þá þarf að auðkenna sig gagnvart honum og breyta port stillingum, þannig að póstforritið sendi á porti 465 eða 587, hægt er að nota port 25, en það er sjaldnast opið fyrir umferð um það hjá Internetveitum vegna spamhættu.

Notendanafn eða User Name er alltaf fullt netfang, hvort sem það er fyrir Incoming eða Outgoing þjón.

Hér að neðan er leiðbeiningar fyrir Microsoft Outlook, sem má ekki rugla saman við forrit sem fylgir með Windows og heitir Outlook Express/Windows Live mail, uppsetning á því er hér. Útgáfan sem notuð er, er Microsoft Outlook 2007, en uppsetning á að vera nokkuð svipuð á milli útgáfna.

Athugið að texti sem birtist undir mynd, fylgir henni.

#1 - Farðu sem leið liggur í Tools → Account Settings.

#2 - Undir Account Settings skaltu þrýstu léttilega á New undir Email flipanum fína og fallega.

#3 - Þú getur valið að láta Microsoft Outlook finna út úr hvernig uppsetningin á að vera, en ef það gengur ekki skaltu haka í Manually configure server settings (1) , og ýta því næst á Next (2) hnappinn.

#4 - Hér er aðeins eitt sem kemur til greina og það er Internet Mail. 1984 býður ekki upp á Microsoft Exchange Server.

#5

Your name: Nafnið þitt eins og þú vilt að það birtist viðtakanda.

Email Address: Netfangið þitt, sem þú ert búinn að búa til í póstumsýslukerfi 1984

Account Type: Hér velur þú IMAP ef þú vilt að pósturinn þinn sé aðgengilegur á netinu, tildæmis á https://vefpostur.1984.is og svo í póstforriti eins og Microsoft Outlook. Þú getur líka valið POP, en POP virkar þannig að póstinum er hlaðið niður í tölvuna þar sem netfangið er uppsett og hreinsaður út af póstþjóninum. Það getur verið hentugt, ef þú þarft að nálgast póstinn þinn, en hefur ekki aðgengi að neti. Þú getur hinsvegar þá ekki nálgast póstinn þinn hvar sem er, ekki nema að þú stillir Microsoft Outlook sérstaklega þannig að hann skilji eftir á póstþjóninum afrit af öllum pósti. Möppur eru ekki heldur aðgengilegar annars staðar en úr sömu tölvu ef POP er valið.

Incoming Mail Server: Hér setur þú alltaf mail.1984.is

Outgoing Mail Server: Hér setur þú mail.1984.is, ef þú vilt nota útsendiþjón 1984. Þú getur einnig notað útsendiþjón sem fylgir með netinu sem þú ert á. Ef þú velur það, er uppsetningu þinni lokið eftir að þú þrýstir næst á Next, ef ekki skaltu halda áfram að lesa.

User Name: Fullt netfang.

Password: Já, þetta skýrir sig eiginlega sjálft.

ATH! Ef þú velur að nota mail.1984.is sem útsendiþjón, skaltu smella á More Settings … , annars skaltu smella á Next og er þá uppsetningu lokið.

Uppsetning á útsendiþjóni 1984.

#6 Inn í More Settings skaltu velja með músarhnappinum flipann Outgoing Server. Þar setur þú haka í My Outgoing server (SMTP) requires authentication. Því næst, af tveimur möguleikum velur þú Logon using.

User Name: Er fullt netfang

Password: Er lykilorðið sem þú bjóst til í póstumsýslukerfi 1984.

#7 Og í þann mund sem þú hélst að þú værir búin/nn, er einn mikilvægur flipi eftir sem heitir því skelfilega nafni: Advanced

Í Incoming Server breytir þú ekki neinu, en í Outgoing Server þarftu að skipta út porti 25 fyrir annaðhvort port 465 eða 587. Port 25 er líka virkt í útsendingu, en er yfirleitt er notkun á því bönnuð hjá öllum internetsölufyrirtækjum, vegna andsetinna Windows tölva sem senda ruslpóst.

#8 Uppsetningu er lokið og nú áttu að geta notað fulla póstþjónustu 1984.

outlook2007.1396964495.txt.gz · Last modified: 2014/04/08 13:41 by birgir