Site Tools


double-auth

This is an old revision of the document!


Tvöföld auðkenning inn stjórnendaaðgang fyrir t.d. wordpress og Joomla

Hægt er að tvöfalda öryggi administrator aðgangs á vefsíðukerfum með því að bæta við auðkenningu fyrir framan innskráningar síðuna. Þá er bætt við öðru öryggis lagi fyrir framan t.d. /wp-admin fyrir wordpress eða /administrator fyrir Joomla.

Þegar farið yrði á t.d á http://orwell.is/wp-admin myndi birtast lock gluggi og þar þarf að setja inn notandanafn og lykilorð til að komast að wp-admin innskráningunni.

{{:screenshot_from_2014-11-19_11_00_40.png?200|}} Með þessu móti er “robotum” sem eru að reyna hakka sig inn á wp-admin aðganginn gert mjög erfitt fyrir þar sem þeir átta sig ekki á fyrsta auðkenningar laginu.

Hvernig er þetta gert?
Þú skráir þig inn á stjórnborðið hjá 1984 með því að fara á 1984.is og smella á innskráning → stjórnborð og skráir þig inn með notandanafninu þínu og lykilorði.

Í framhaldi smellir þú á “fara á stjórnborð hýsingar” og ertu flutt/ur á dularfullann hátt yfir á stjórnborð hýsingarinnar.

Efst uppi smellir þú á veftól.

Og í framhaldi á vernduð svæði.

Þar smellir þú á “veldu möppu” og leitar að svæðið sem þú vilt læsa og velur í framhaldi notandann sem verður tengdur læsta svæðinu, í þessu tilviki “lock”. Hægt er að búa til fleiri notendur fyrir önnur svæði og í raun engin takmörk fyrir hverju er hægt að læsa. T.d. væri hægt að búa til myndasvæði þar sem eingöngu valdir fjölskyldumeðlimir sem hafa lykilorðið hafa aðgang.

double-auth.1419260802.txt.gz · Last modified: 2014/12/22 15:06 by birgir